Konunni þykir gaman að fá gesti og býður mörgum í heimsókn. En gamli félagsfælnipúkinn hennar lætur alltaf á sér kræla áður en gestirnir koma, kvíðinn hríslast um hana og konunni langar helst að skella í lás og látast ekki vera heima. En svo er svo frábærlega gaman þegar gestirnir koma og allt gengur svo vel.
Þetta bil á milli tilhlökkunnar og angistar er einhversskonar twilight zone, allar hugsanir konunnar sem fara um huga hennar eru í það minnsta niðurbrjótandi og snúast um hversu konan er ómöguleg í alla staði, fólk sé bara svona aumingjagott að koma og heimsækja hana.
Í rauninni finnst konunni einstaklega skemmtilegt að fá gesti og hún er svo glöð að taka á móti góðum vinum og traktera þá á veitingum og gera sitt besta til að þeim líði sem best. Þegar gestirnir fara líður konunni þannig að hún sé svo rík af vinum og henni líður vel innra með sér og að hún sé ákaflega lánsöm að geta tekið á móti þeim á sem bestan hátt.
Konan ætlar að halda áfram a bjóða fólki í heimsókn því að hún nýtur þess að fá gesti, þrátt fyrir þetta augnablik félagsfælninnar veit konan að eftir því sem hún býður fleiri í heimsókn dregur út áhrifum hennar og þetta augnablik minnkar og styttist.
Kannski ætti konan að bjóða félagsfælnipúkanum í heimsókn og bjóða hann velkomin en segja honum að hans sé ekki þörf lengur og kveðja hann síðan að eilífu, öfugt við þá gesti sem konan hefur fengið hingað til.
Eldri færslur
- Júní 2017
- Apríl 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Apríl 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Apríl 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.