Nú er konan komin heim eftir gott frí þar sem slakað var á í sólinni, etið og drukkið og notið góðs félagsskapar.
Og þegar heim er komið skoðar konan stöðu sína og hvað skuli gera næstu mánuði.
Konan fyllist bjartsýni með hækkandi sól og er svo viss um að allt gangi öllum, þeim sem sem vilja vinna að því að bæta geðheilsu sína og hvers annars, í haginn með aukinni þátttöku í Batasetri Suðurlands, því að hópurinn sem er þar fyrir er svo sterkur og heilsteyptur og hefur svo mikið fram að færa.
Einnig hefur konan fengið svo mikla viðurkenningu á starfi Bataseturs frá svo mörgum félagasamtökum og einkaaðilum en á aðeins brot af þeirri viðurkenningu því batasetursfólkið á mestan þátt, án þeirra væri Batasetrið ekki til. Jafnframt er það eitt gleðilegasta sem konan gerir er að taka á móti styrkjum frá ýmsum félagasamtökum og einstaklingum sem af örlæti vilja styðja við starfsemina, það kemur ósjaldan út tárunum á konunni og yljar alveg inn að innstu hjartarótum.
Enn finnst konunni hún vera að leika tveimur skjöldum, hún þykist hafa eitthvað fram að færa og geta aðstoðað einstaklinga með geðraskanir en hún nær ekki að stjórna eigin kvíða, hvað er það eiginlega!! Það er líka svo fáránlegt að konan hugsar oft á dag, þegar kvíðinn er mikill, af hverju hættir hún ekki þessu bara! Og um leið og hún sleppir þeirri hugsun þá kemur önnur: En hver gerir það þá? Konunni var líkt við Litlu gulu hænuna að því leyti að hún gerir hlutina frekar en að bíða eftir því að einhver annar geri þetta, kannski er hún bara svona óþolandi stjórnsöm og vill bara fá að ráða þessu öllu en það er samt sem áður mikilvægt að aðrir geti stigið inn í og stutt við konuna í þessari vinnu. En á meðan hænan gerir flesta hluti þá fær hún líka að borða brauðið en vill gjarnan deila því með fleirum. Og á meðan hún fær brauð heldur hún áfram og áfram og áfram.......
Eldri færslur
- Júní 2017
- Apríl 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Apríl 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Apríl 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.