Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2017
Jæja, þá þarf konan að grípa til þess ráðs sem hjálpar henni mest þegar krísa er í gangi.
Undanfarnar vikur hefur álagið á konunni verið gríðarlega mikið en því er nú að linna. Þegar álagið verður of mikið kemur það ekki síður líkamlega út en á geðrænan hátt, jújú mikil ósköp konan verður mjög þung í skapi, kvíðir öllu og verður almenn fremur erfið en konan þekkir það vel enda búin að vera að kljást við það í tæp 40 ár. En annað er að renna upp fyrir konunni og það er hversu nátengd sálin er líkamlegri líðan og hefur hún nú verið að hugsa til baka, hefur þurft að hugsa dáldið lengi enda konan að nálgast hálfrar aldar afmælið 😉
Konan var ofsalega oft með hálsbólgu sem barn sérstaklega á sunnudögum því að á mánudögum var leikfimi í skólanum og kveið konuna alltaf fyrir þeim tímum. Þegar konan eltist bættist höfuðverkurinn við, konan alltaf með vöðvabólgu, allir verkir mögnuðust og á tímabili hélt konan að hún hlyti að vera með einhvern stórhættulegan sjúkdóm. Á unglingsárunum fer konan að stunda sjálfskaða til þess að finna sársaukanum innra með henni leið út.
Þegar konan varð fullorðin og innra með henni var þessi stóri svarti dreki sem stundum spjó eldi og eitri og gerði það að verkum að hún var stöðugt verkjuð og höfuðverkurinn var daglegur fylgifiskur og öll einkenni urðu að óyfirstíganlegum einkennum alvarlegra sjúkdóma.
Konan lá í rúminu dögum saman og grét, að hún hélt vegna höfuðverkjar en í rauninni var það depurðin sem hafði þar mest áhrif.
Þegar konan var ófrísk af fyrsta barninu þá fór hún sex sinnum inn á sjúkrahús vegna verkja sem var engin skýring var á, verkirnir voru jafn raunverulegir og að Trump er forseti BNA, kvalafullir og óútreiknanlegir. Konan vill leggja áherslu á að þetta er raunverulegt fyrir henni, sálvefrænir sjúkdómar eru til í raun og veru.
Jú mikil ósköp það er ýmislegt líkamlegt að konunni og það má ekki gera lítið úr því en sál og líkami eru svo nátengt að þetta hefur áhrif á hvort annað. Oft byrjar þetta með því að konan ofgerir sér á einhvern hátt likamlega t.d. að fara fram úr sjálfri sér í ræktinni sem skilar sér í verkjum sem magnar síðan kvíða eða þunglyndi sem magnar síðan aftur líkamlega verki, þetta verður að vítahring sem er svo erfitt að brjótast út úr.
Konan er búin að vera undir miklu álagi og ýmislegt verið í gangi sem hefur valdið henni depurð og kvíða og hún tók alltof mikið á því í ræktinni þannig að líkamlega hliðin var mjög slæm. Konan var mjög verkjuð og það skánaði ekki eftir því sem leið, því að kvíði og depurðin jukust líka og allskonar einkenni fóru að skjóta upp kollinum, fyrir utan þennan venjulega höfuðverk voru líkamleg einkenni allstaðar.
Þegar álaginu linnti, varð konan aftur stálslegin eða bara svona venjulega verkjuð og lundin léttist og allt varð léttara.
Það var nú samt ekki svo að konan væri að gera sér upp þessi einkenni, þau voru alveg jafn raunveruleg og hjá öðrum, til dæmis tók konan þátt í að setja upp leikrit og þegar nær dróg frumsýningardegi fékk konan hálsbólgu og það enga smá hálsbólgu, það gróf í hálsinum og hún þurfti neyðaraðgerð til þess að taka hálskirtlana. En þetta sýnir að geðrænir sjúkdómar geta komið fram líkamlega, konan er með vefjagigt sem versnar í hvert sinn sem þunglyndið eða kvíðinn eykst.
Konan vonast til þess að geta betur tekist á við þessa vondu líðan með því að setja hana á blað, opna umræðuna og ef til vill hjálpa fleirum sem eiga við erfiðleika af þessu tagi að stríða.
p.s. konan gerir sér grein fyrir því að svona skrif hjálpa henni ekki faglega en á meðan það hjálpar einhverjum þá er það þess virði.
Bloggar | 15.4.2017 | 09:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eldri færslur
- Júní 2017
- Apríl 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Apríl 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Apríl 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012