Stundum langar konuna til þess að fá hrós.. ekki það að hún fái ekki hrós og mikið af því,en stundum vill hún fá hrós frá ákveðnum aðilum sem virðast ekki geta gefið hrós eða vilja það ekki. Konan hefur alist upp við, eins og flestir íslendingar, að hrós sé hættulegt og alltof oft gefið og fólk verði montið af því að fá hrós og eigi það ekki skilið. Síðan er auðvitað eitt hvernig hrósinu er tekið, það er algengast að fólk geri lítið úr því og telji að hrósið sé aumingjagæska og að það eigi það ekki skilið. Konan er looooksins búin að læra að segja takk fyrir, þetta er fallega sagt og leyfa því að ylja hjartanu og auka sjálfsálitið (það má). Því að þegar það er verið gera lítið úr þeim sem gefur hrósið og gefið í skyn að þeir viti nú bara ekkert í sinn haus.
Konan hrósar fólki þegar hún finnst að þeir verðskuldi það, hvort sem það sé þegar þau standa sig vel eða þau þurfa nú ekki vera meiri en að hrósa einhverjum fyrir það hversu fallegri peysu (konan er reyndar með lopapeysublæti) einstaklingurinn er í, svona hrós tekur ekkert frá konunni en viðtakandinn gæti orðið oggulítið glaðari og aukið birtuna í deginum hjá honum.
Konan hefur í lengri tíma meðvitað hrósað fólki því að hún hefur tekið eftir einhverjum jákvæðum eiginleikum í fari þeirra, konan hrósar ekki bara fyrir eitthvað s.s. vá rosalega heldur þú fallega á gafflinum þínum (nema þú eigir í einhverjum sérstökum erfiðleikum við það) eða rosalega smjattar þú dásamlega....(alls ekki þar sem konan fær hrukkur á heilann þegar hún heyrir smjatt).
Hrós skiptir máli, það gefur smá yl í hjartað og þaggar aðeins niður í púkanum á öxlinni ásamt því að viðtakanda gæti dottið í að láta það ganga (pay it forward) þannig að allir græða
Hrósum meira..........en bara ef við meinum það.
Eldri færslur
- Júní 2017
- Apríl 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Apríl 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Apríl 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.